Einkaopnanir
Vök Baths bíður upp á prívat opnanir. Prívat opnanir henta þeim sem vilja hafa staðinn út af fyrir sig, hvort sem um smærri eða stærri hópa er að ræða. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda okkur fyrirspurn hér í fyrirspurnarglugganum eða senda tölvupóst á sales@vokbaths.is.
Tebar
Á Tebarnum bjóðum við upp á úrval af lífrænum jurtadrykkjum sem gestir brugga sér sjálfir. Þar eru á boðstólnum íslenskar handtíndar jurtir sem blandað er í 75 gráðu heitt og kristaltært vatn beint úr borholum Urriðavatns.
Við bjóðum jurtadrykkina einnig kælda ef gestir vilja frískandi drykk eftir slökun í heitu laugunum. Þessi drykkur er innifalinn í öllum aðgangsmiðum og geta gestir notið þess fyrir eða eftir bað.
Fundir og ráðstefnur
Í enda Vök Bistro er að finna bjartan fundarsal í einstöku umhverfi sem nýta má hvort sem er fyrir smærri fundarhöld, námskeið sem og einkaveislur.
Salurinn tekur um það bil 20 manns í sæti og er búinn flatskjá sem nota má fyrir fundi.
Við tryggjum góða þjónustu og sér Vök Bistro um matar- eða kaffiveitingar eftir óskum.
Fyrir nánari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við: sales@vokbaths.is
Vökvi and Vaka
Einstakir og bragðgóðir handverksbjórar framleiddir í samvinnu við Austri Brugghús. Bjórarnir eru framleiddir með heita vatninu úr Urriðavatni.
Vökvi er 4,5% Blond Kellerbier framleiddur úr byggi frá Vallanes.
Vaka er 4,5% Session IPA, þurrhumlarður framleiddur með sítrónumelissu frá Vallanesi.