Vök Bistro
Við mælum eindregið með heimsókn á Vök Bistro og Tebarinn til að auka enn frekar á upplifun dagsins.
Á Vök Bistro er boðið upp á úrval bragðgóðra rétta ásamt léttari veitingum s.s. súpur, smáréttir og þeytingar. Margt hráefni kemur úr heimabyggð og er leitast við að kaupa inn lífrænt eins og kostur er. Gott samstarf er við austfirska bændur til að tryggja ferskt og fyrsta flokks hráefni.