Sumarnæturopnun allan sólarhringinn í Vök Baths

2. júlí kl.10:00 – 3.júlí kl.22:00

 

Í tilefni af sumarsólstöðum, World Bathing Day og Jónsmessu verður sumarnæturopnun í Vök Baths þann 2. júlí. Opið verður frá kl. 10:00 að morgni 2. júlí til kl. 22:00 að kvöldi 3. júlí og fá gestir því einstakt tækifæri til að upplifa bjarta, íslenska sumarnótt.

Overview of Vök Baths during winter
Við hefjum sumarnóttina kl 22:00 með ljúfum tónum frá Øystein Gjerde. Laugarbarinn verður opinn til klukkan 03:00 og verður óáfengi drykkurinn Lárus sundöl, á 2 fyrir 1 tilboði milli klukkan 02:00-03:00.

World Bathing Day er 22. júní. Þann dag er fólki um allan heim boðið að fagna sameiginlegri tengingu mannkyns við vatn í gegnum böð.

Aðfaranótt 24. júní er Jónsmessunótt. Þessi nótt er sögð ein sú magnaðasta í íslenskri þjóðtrú þar sem kýr geta talað, selir breytast í menn og mannfólk veltir sér nakið upp úr næturdögginni.
Við hvetjum þá sem eiga flothettur að taka þær með sér og upplifa þyngdarleysi í okkar einstöku fljótandi laugum. Einnig er hægt að fá flothettur leigðar hjá okkur á laugarbarnum.

Fögnum íslensku sumarnóttinni saman í Vök Baths.

Aðgangur að Vök Baths

Map of the location of Vök baths
Messenger
Right Menu Icon